Persónuverndarstefna netverslunarinnar Toolworld.is

Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvernig Verkfæraheimar ehf.,
kt. 491225-1730, safnar, notar og vinnur með persónuupplýsingar þegar þú
heimsækir eða verslar á vefsvæðinu www.toolworld.is


 

Stefnan er sett í samræmi við íslensk lög nr. 90/2018 um
persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

 

Síðast uppfært: 25.12.2025

 

Ábyrgðaraðili

Verkfæraheimar ehf. (hér eftir „fyrirtækið“ ) er
ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnað er í gegnum vefsvæðið.

 

Nafn: Verkfæraheimar ehf

Kennitala: 491225-1730

Heimilisfang: Flugvellir 15, 230 Reykjanesbæ

Netfang: toolworld@toolworld.is


Sími: 454-2800

Söfnun og notkun persónuupplýsinga

Við bjóðum ekki upp á að viðskiptavinir útbúi
innskráningarreikninga. Öll söfnun persónuupplýsinga tengist því eingöngu
afgreiðslu pantana eða beinum samskiptum að þínu frumkvæði.

 

Þegar þú pantar í netverslun okkar söfnum við eftirfarandi
upplýsingum:

 

Samskiptaupplýsingar: Netfang og símanúmer.

Persónuupplýsingar: Nafn, heimilisfang og kennitala.

Kennitala er hluti þeirra upplýsinga sem
afhendingarþjónustur nýta til þess að koma vörum á öruggan máta í hendur réttra
aðila.

Pöntunarupplýsingar: Upplýsingar um þær vörur sem þú
kaupir.

Greiðsluupplýsingar:

Við söfnum hvorki eða sjáum, né heldur geymum,
greiðsluupplýsingar þínar. Öll greiðsluþjónusta fer fram í gegnum öruggar og
vottaðar greiðslugátti/síður þriðja aðila, sem eru Straumur Payments (Kvika
banki), Pei (Greiðslumiðlun) og Netgíró (Kvika banki). Þessir aðilar eru
ábyrgðaraðilar þeirra upplýsinga sem aflað er í þeim tilgangi að innheimta
greiðslu.

 

Tilgangur vinnslunnar

Við söfnum og vinnum eingöngu með þær upplýsingar sem
nauðsynlegar eru til að veita þér umbeðna þjónustu og uppfylla skyldur um
bókhald.

 

Vefkökur (Cookies)

Vefsvæðið okkar (hýst á WordPress) notar vefkökur til að
tryggja grunnvirkni.

 

Nauðsynlegar kökur: WordPress og WooCommerce
(verslunarviðbótin) nota kökur til að muna hvað er í körfunni þinni á meðan þú
vafrar um síðuna. Þessar kökur eru nauðsynlegar fyrir virkni verslunarinnar og
safna ekki persónugreinanlegum upplýsingum til markaðssetningar.

(Valfrjálst) Greiningarkökur: Við gætum notað tól eins og
Google Analytics til að safna ópersónugreinanlegum upplýsingum um notkun á
vefnum (t.d. fjölda heimsókna, hvaða síður eru skoðaðar) til að bæta þjónustu
okkar. Slík söfnun er aðeins gerð með þínu samþykki, sem þú gefur í gegnum
vefkökuborða við fyrstu heimsókn.

Þú getur ávallt stjórnað eða eytt vefkökum í gegnum
stillingar vafrans þíns.

 

Miðlun til þriðju aðila (Vinnsluaðilar)

Við seljum, leigjum eða deilum persónuupplýsingum þínum
ALDREI til þriðja aðila í markaðstilgangi.

 

Við deilum aðeins upplýsingum með völdum þjónustuaðilum
(vinnsluaðilum) sem eru nauðsynlegir til að ljúka þjónustunni. Þessir aðilar fá
aðeins þær upplýsingar sem þeir þurfa til að sinna sínu hlutverki.

 

Vinnsluaðilar okkar eru:

 

Greiðsluþjónusta: Straumur Payments, Pei og Netgíró
vegna afgreiðslu greiðslna.

Sendingaraðilar: Pósturinn, Fraktlausnir, Flytjandi og
Landflutningar til að koma pöntun þinni á áfangastað.

Hýsingaraðili: Zix ehf

Bókhaldsþjónusta/Endurskoðandi: Regla.is

Þessir aðilar eru allir bundnir skyldu um að meðhöndla
gögnin á öruggan hátt og í samræmi við persónuverndarlög.

 

Geymslutími gagna

Við geymum persónuupplýsingar þínar aðeins eins lengi og
nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar.

 

Pöntunargögn: Geymd í 24 mánuði vegna ábyrgðar- og
skilamála.

Bókhaldsgögn: Reikningsupplýsingar og gögn sem tengjast
sölunni eru geymd í 7 ár í samræmi við íslensk bókhaldslög.

Öryggi gagna

Við leggjum áherslu á öryggi þitt. Vefsvæðið okkar notar SSL
dulkóðun (https://) til að vernda allar upplýsingar sem fara á milli þín og
vefþjónsins auk þess að vefsvæðið er stöðugt uppfært og öryggi viðhaldið til
hins ítrasta, af hýsingaraðila, WordPress.

 

Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú ákveðin réttindi
varðandi þínar persónuupplýsingar:

 

Réttur til aðgangs: Þú getur óskað eftir afriti af þeim
gögnum sem við höfum um þig og munum við verða við slíkri beiðni án tafar.

Réttur til leiðréttingar: Þú getur óskað eftir að rangar eða
ófullnægjandi upplýsingar séu leiðréttar og munum við verða við slíkri beiðni
án tafar.

Réttur til eyðingar: Þú getur óskað eftir að upplýsingum um
þig sé eytt, nema okkur sé skylt að geyma þær samkvæmt lögum (sbr. Bókhaldslög).

Réttur til að kvarta: Þú átt rétt á að leggja fram kvörtun
til Persónuverndar (www.personuvernd.is)
ef þú telur að brotið sé á réttindum þínum.

Ef þú vilt nýta þessi réttindi, vinsamlegast hafðu samband
við okkur á Toolworld@toolworld.is

 

Breytingar á stefnunni

Þessi persónuverndarstefna kann að vera uppfærð til að
endurspegla breytingar á starfsemi okkar eða vegna lagabreytinga. Allar
breytingar öðlast gildi þegar þær eru birtar á vefsvæðinu. Við hvetjum þig til
að skoða stefnuna reglulega.

 

 


Shopping Cart
Scroll to Top