VIÐSKIPTASKILMÁLAR
TOOLWORLD.IS


Upplýsingar um seljanda:

Toolworld.is er netverslun, rekin af Verkfæraheimar ehf

Kennitala: 491225-1730

Vsk.nr: 159638

Sími: 454-2800

Netfang: toolworld@toolworld.is


Sé nánari skýringa þörf á innihalda skilmála þessara, skal
viðskiptavinur hafa samband á netfangið toolworld@toolworld.is

Persónuverndarskilmála netverslunarinnar má nálgast á
eftirfarandi hlekk: Persónuverndarskilmálar (opnast í nýjum flipa)

Almennt:

Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti í vefverslun.
Skilmálarnir eru í samræmi við gildandi íslensk lög, m.a. lög nr. 48/2003 um
neytendakaup, lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup, lög nr. 16/2016 um
neytendasamninga og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna
þjónustu.

Skilmálar þessir takmarka ekki lögbundin réttindi neytenda.
Komi ósamræmi upp ganga lög framar.


Kaup, greiðsla, afhending, vöruskil:

Upplýsingar fyrir kaup
Á vefsíðu og í greiðsluferli skulu á skýra máta koma fram
upplýsingar um:

Heiti, einkenni og megin eiginleika Vöru;

Verð með virðisaukaskatti og öllum gjöldum (þ.m.t.
sendingarkostnaður áður en pöntun er staðfest);

Greiðslumáta og afhendingarvalkosti;

Fyrirvaralausar takmarkanir (t.d. birgðastaða eða
fjöldatakmarkanir)


Pöntun, staðfesting og reikningur

Innsláttur kennitölu í greiðsluferli er skilyrði.

Pöntun telst samþykkt þegar viðskiptavinur fær staðfestingu
í tölvupósti, að fullnaðargreiðslu lokinni. Reikningur fylgir með staðfestingu
og með vöru.

Seljandi áskilur sér rétt til að hafna pöntun ef grunur er
um misritun, vafasama notkun greiðslukorts, ef heimilisfang sem skráð er finnst
ekki eða ef villa er í vörubirgðum. Skal seljandi þá endurgreiða viðskiptavini
án tafar.

Allar upplýsingar í vefverslun eru birtar með fyrirvara um
prentvillur og villur í skráningu á birgðastöðu. Sama gildir um villur við
verðskráningu sem eru þessi eðlis að viðskiptavin má vera ljóst að um augljós
mistök sé að ræða en við slíkar aðstæður áskilur Toolworld.is sér rétt til að
fella niður pöntun og endurgreiða viðskiptavini án tafar.

Öll verð í vefverslun eru gefin upp í íslenskum krónum og
með virðisaukaskatti (24%).

 
Greiðsla og afhending

Hægt er að greiða með öllum helstu debit- og kreditkortum, Pei
eða Netgíró. Kortafærslur greiðslur fara í öllum tilfellum í gegnum örugga
greiðslusíðu hjá Straumur greiðslumiðlun hf., dótturfélagi Kviku banka hf. Sem
er ekki hýst hjá seljanda. Seljandi hvorki fær, sér, né geymir kortaupplýsingar
viðskiptavinar. Greiðslur í gegnum greiðsluþjónustu Netgíró fer í öllum
tilfellum í gegnum örugga greiðslusíðu Netgíró, sem er í eigu Kviku banka hf. Greiðslur
í gegnum greiðsluþjónustu Pei fer í öllum tilfellum í gegnum örugga
greiðslusíðu Pei, sem er í eigu Greiðslumiðlunar hf.

Viðskiptavinur verslar í vefverslun og velur greiðsluleið
við frágang pöntunar;

Viðskiptavinur færist á greiðslusíðu Straums, Netgíró eða Pei
og gengur frá kaupunum;

Viðskiptavinur fær senda kvittun og flyst aftur yfir í
vefverslun.

Afgreiðsla pantana á lagervöru tekur 0-2 virka daga og fer
að því loknu til viðeigandi flutningsaðila til afhendingar. Ef um vöru sem er ekki
á lager, þá er hún pöntuð næsta miðvikudag eftir staðsetningu á kaupum og er afhent
eigi seinna en viku síðar nema hugsanlega falli til hátíðar- eða frídagar.

Afhending pantana fer fram með Póstinum, Landflutningum, Flytjanda
eða Fraktlausnum samkvæmt þeim skilmálum sem viðkomandi flutningsaðili birtir
hverju sinni. Kaupandi ber alla ábyrgð á að velja réttan afhendingarstað í
greiðsluferlinu. Ef pöntun er yfir 25.000 kr býður Toolworld.is upp á fría afhendingu.
En Toolworld.is áskilur sér rétt til að velja hagkvæmasta mátann hverju sinni.

Um þjónustu flutningsaðila má finna á vefsvæði hvers og eins.

www.posturinn.is
www.fraktlausnir.is
www.flytjandi.is
www.landflutningar.is

Áhætta af vöru flyst til neytanda við afhendingu. Ef tafir
verða á því að varan fari í afhendingarferli, skal seljandi tilkynna
viðskiptavini það svo fljótt sem auðið er og bjóða t.d. nýjan afhendingartíma
eða endurgreiðslu.


Fjarsala og réttur til að falla frá samningi (14 dagar)

Viðskiptavinur getur fallið frá fjarsölusamningi innan 14
daga frá móttöku vöru, án þess að tilgreina nokkra ástæðu. Til að nýta réttinn
skal senda ótvíræða tilkynningu með tölvupósti áður en frestur rennur út og
skila vöru til seljanda innan 14 daga frá tilkynningu.

Undanþágur frá rétti til að falla frá geta átt við, m.a. um:

Vörur sem eru sérpantaðar;

Að umbúðir séu ekki til staðar, eða merkimiðar séu ekki
lengur á vörunni.

Réttur til að falla frá samningi:

Þú hefur rétt til að falla frá þessum samningi án þess að
tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga.

Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir
þann dag sem þú eða annar einstaklingur sem þú tilgreindir, annar en
flutningsaðilinn, hefur fengið vöruna í sína vörslu.

Til þess að nýta réttinn til að falla frá samningnum þarft
þú að tilkynna okkur, Verkfæraheimar ehf., toolworld@toolworld.is , ákvörðun þína
um að falla frá samningnum með ótvíræðri yfirlýsingu (t.d. með bréfi sendu í
pósti eða tölvupósti). Berist ótvíræð yfirlýsing með tölvupósti, munum við
staðfesta móttöku svo fljótt sem auðið er.

Til að fresturinn teljist virtur nægir þér að senda
tilkynningu um að þú neytir réttar þíns til að falla frá samningi áður en
fresturinn rennur út.

Áhrif þess að falla frá samningi:

Ef þú fellur frá þessum samningi munum við endurgreiða þér
fullt verð vörunnar. Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og alla
jafna ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst tilkynning um um að þú fallir
frá þessum samningi, þó ekki fyrr en við höfum fengið vöruna aftur í okkar
hendur, eða þú hefur lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar. Við munum
endurgreiða þér með því að nota sama greiðslumiðil og þú notaðir í upphaflegu
viðskiptunum, nema þú hafir samþykkt annað sérstaklega.

Þú þarft að endursenda eða afhenda vöruna til okkar, í
upprunalegu ástandi, í upprunalegum umbúðum og með öllum merkimiðum áföstum, án
ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir daginn sem þú tilkynnir
okkur ákvörðun þína um að falla frá samningnum. Fresturinn telst virtur ef þú
endursendir vöruna fyrir lok 14 daga tímabilsins.

Þú þarft að bera beinan kostnað af endursendingu vörunnar.

Þau atriði sem yfirlýsing skal innihalda (Reglugerð nr.
435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi):


Til (hér skal setja inn nafn seljandans, heimilisfang og, ef
hægt er, bréfasímanúmer og netfang):

Ég/Við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*)
óska/óskum (*) eftir að falla frá samningi mínum/okkar (*) um sölu á
eftirfarandi vöru (*)/um veitingu eftirfarandi þjónustu (*)

Sem voru pantaðar hinn (*)/mótteknar hinn (*)

Nafn neytanda/neytenda

Heimilisfang neytanda/neytenda

Undirritun neytanda/neytenda (einungis ef þetta eyðublað er
á pappírsformi)

Dagsetning

Gallar, úrræði og ábyrgð seljanda:

Komi upp galli í vöru er viðskiptavini boðin ný vara í
staðinn og greiðum við allan sendingakostnað eða endurgreiðum sé þess krafist.
Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið toolworld@toolworld.is með upplýsingum
um galla vörunnar.

Ef vara reynist sannarnlega gölluð (t.d. framleiðslugalli) á
viðskiptavinur rétt á úrbótum í formi endurgreiðslu eða nýrrar afhendingar
sambærilegrar vöru. Ráðlögð notkun, meðferð og viðhald fer eftir leiðbeiningum
framleiðanda. Skemmdir vegna rangrar notkunar eða illrar meðferðar falla ekki
undir galla hugtakið.

Við móttöku er viðskiptavini ráðlagt að skoða vöruna. Komi í
ljós við afhendingu að varan sé skemmd, skal strax hafa samband við seljanda á toolworld@toolworld.is

Persónuupplýsingar:

Öll meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við
gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd, engin gögn eru seld þriðja aðila í
nokkrum einasta tilgangi. Persónuverndarskilmála má finna hér:
Persónuverndarskilmálar (opnast í nýjum flipa).

Höfundarréttur:

Allt efni sem birtist á vefsíðu Toolworld.is, er
höfundarréttarvarið og Verkfæraheimar ehf. Sérleyfishafi á notkun efnisins. Á
það við um texta, grafík, video, lógó og myndir. Efnið má ekki nota, breyta,
birta, endurgera, afrita, selja eða hagnýta á annan hátt af þriðja aðila

Lög og varnarþing:

Um viðskiptaskilmála þessa gilda Íslensk lög. Rísi
ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Um efni
þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir
kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef ekki næst
samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjaness.


Shopping Cart
Scroll to Top